Plánetan er öflug auglýsinga- og hönnunarstofa mönnuð reynslumiklu fólki sem hefur unnið heildarútlit og markaðsefni fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins.
Í samræmi við umfang hvers verkefnis fyrir sig vinnur Plánetan með neti fagfólks. Sótt er eftir þörfum í smiðju textafólks, forritara, ljósmyndara og markaðsfólks. Stofan hefur náð góðum árangri með þessu fyrirkomulagi og tekist að halda kostnaði í lágmarki.
Starfsmenn Plánetunnar hafa unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir hönnun og auglýsingar.

